Góðan dag

Veðurfræðifélagið hitar upp fyrir komu jólasveinanna með röð erinda í annarri viku aðventunnar, 9.-12. desember.  Erindin hefjast kl. 15:00 og verða haldin í gamla matsal Veðurstofunnar að Bústaðavegi 9. Hvert erindi verður 15-25 mínútur og nægur tími mun gefast fyrir spurningar og umræðu eftir erindin.

Veðurfræðifélagið og erindaröðin eru opin öllum sem hafa áhuga á veðri og veðurfari.

Staðsetning: Gamli matsalur Veðustofunnar að Bústaðavegi 9.
Tími: kl. 15:00

Dagskrá:

Mánudaginn 9. des.:

Þórður Arason (Veðurstofu) – Manntjón í eldingum á Íslandi

Þriðjudaginn 10. des.:
Árni Jón Elíasson (Landsneti) – Slydduísing á Íslandi: Mælingar og reiknilíkön

Miðvikudaginn 11. desember:
Þóranna Pálsdóttir (Veðurstofu) – Gagnaflækja (og greiðslumáti)

Halldór Björnsson (Veðurstofu) – IPCC WG1 AR5! Eru loftslagsbreytingar að breytast?

Fimmtudaginn 12. desember:
Guðfinna Aðalgeirsdóttir (Jarðvísindastofnun) – Breytingar á Grænlandsjökli og íslenskum jöklum síðasta áratuginn.

Kveðja,
Guðrún Nína, Sibylle og Hálfdán