Ágæta fjölmiðlafólk,

Við viljum koma á framfæri við ykkur tilkynningu vegna fræðsluerindis Hins íslenska náttúrufræðifélags.

„Nýja Ísland: Ný sýn á jarðfræði Íslands“
Dr. Haukur
Jóhannesson, jarðfræðingur hjá Íslenskum orkurannsóknum, heldur erindi
á vegum Hins íslenska náttúrufræðifélags. Erindið verður flutt
mánudaginn 25. janúar kl. 17:15 í stofu 132 í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands. Aðgangur er öllum heilmill og
ókeypis.

Vinsamlega miðlið og komið málinu á
framfæri.

Ágrip af erindi dr. Hauks Jóhannessonar, jarðfræðings hjá Íslenskum orkurannsóknum.

„Nýja Ísland: Ný sýn á jarðfræði Íslands“

Fyrirlesturinn
fjallar um sögu gosbeltaflutninga á Íslandi og í honum eru settar fram
hugmyndir um að gosbeltaflutningar hafi verið fimm eða sex á síðustu 16
milljón árum, en ekki tvisvar eins og talið hefur verið. Hvert gosbelti
er virkt í tiltölulega skamman tíma, 2-4 milljónir ára, en færir sig
svo um set. Samhverfur sem fylgja slíkum gosbeltum eru flestar grafnar
undir yngri jarðmyndunum frá yngri gosbeltum og á því er aðeins ein
undantekning en það er hið forna Snæfellsnesgosbelti.

Farið er yfir jarðsögu Íslands í nýju ljósi og uppbyggingu
landsins. Sprungukerfi eru flóknari en talið var, einkum á
vesturflekanum og augljóst að mörg þeirra eru enn virk. Flest þessara
sprungukerfa eru leifar gamalla sniðgengiskerfa sem fylgdu fyrri
gosbeltaflutningum. Yfirborðsjarðhitinn fylgir sprungukerfunum eins og
skugginn sem gefur til kynna að kerfin séu enn virk. Þar liggur líklega
skýringin á því að mikill jarðhiti er á Vesturlandi, Vestfjörðum og
Norðurlandi en lítill á Austurlandi.

Í þessari úttekt er fundin skýring á meiri háttar rofmislægjum og
setlagabunkum sem lengi hafa valdið mönnum heilabrotum. Einnig bendir
ýmislegt í efnafræði heits vatns til þess að kvika sé tiltölulega
grunnt undir Vestfjörðum. Þegar litið er á sprungukerfin læðist að
manni sá grunur að huga þurfi að skjálftahættu á vestanverðu landinu í
þessu nýja ljósi.

Fyrir hönd stjórnar HÍN,

Ester Ýr Jónsdóttir

Umsjónarmaður fræðsluerinda HÍN