<html><body style="word-wrap: break-word; -webkit-nbsp-mode: space; -webkit-line-break: after-white-space; ">Birgir Vilhelm Óskarsson, meistaranemi í jarðfræði, flytur<br>lokafyrirlestur um MS-verkefni sitt þriðjudaginn 29. september 2009<br>klukkan 16 í Öskju, stofu 131. Heiti verkefnisins er:<br><br><b>The Skerin ridge on Eyjafjallajökull, south Iceland: Morphology and magma-ice<br>interaction in an ice-confined silicic fissure eruption</b><br><br>Í fyrirlestrinum fjallar Birgir um myndun hins 4,5 km langa Skerjahryggs í ofanverðum norðvesturhlíðum Eyjafjallajökuls. Hryggurinn er myndaður í sprungugosi í jökli sem var um eða undir 100 m þykkur. Hann er að mestu gerður úr trakíti en þar er einnig að finna trakíandesít og basalt. Kælifletir eru skipulega rannsakaðir og sýna skýr merki þess að hraunið sem upp kom hafi kælst af vatni og útbreiðslan hafi verið skorðuð af ís. Lagt er mat á ísbráðnun og stærðargráðu rennslis bræðsluvatns í jökulhlaupi þegar Skerin mynduðust.<br><br>Leiðbeinendur Birgis eru Magnús Tumi Guðmundsson og Þorvaldur Þórðarson.<br><br>Prófdómari er Ármann Höskuldsson.<div><br></div><div><br>-------------------------<br></div><div><br></div><div><br></div><div>Birgir Vilhelm Óskarsson, an MS-student in geology, will give a lecture<br>on his MS-project on Tuesday, September 29, 2009, at 16h in Askja, room<br>131. The title of the project is:<br><br><b>The Skerin ridge on Eyjafjallajökull, south Iceland: Morphology and magma-ice<br>interaction in an ice-confined silicic fissure eruption</b><br><br>In the lecture Birgir studies the formation of the partly ice covered Skerin ridge, built in an eruption along a 4.5 km long fissure on the northwest upper flanks of Eyjafjallajökull. The ice thickness at the time of eruption was about 100 m. The ridge is mostly made of trachytic lavas but minor amounts of trahyandesite and basaltic icelandite/hawaiite are also present. Cooling structures were systematically studied and clear evidence found of water cooling and ice confinement. Ice melting during the eruption is estimated and possible values of meltwater discharge studied.<br><br>Advisors are Magnús Tumi Guðmundsson and Þorvaldur Þórðarson.<br><br>Examiner: Ármann Höskuldsson.</div></body></html>