Þorraþing Veðurfræðifélagsins verður sett föstudaginn 13. febrúar kl. 13:15 í Víðgelmi í Orkugarði að Grensásvegi 9. Í framhaldi af þinginu heldur félagið aðalfund sinn og fundarhöldum lýkur um kl. 16:30.

Dagskráin er sem hér segir:

Þorraþing:

13:15 Einar Sveinbjörnsson - Seltuveður 18. september 2008 og tegundir seltuveðra suðvestanlands.

13:30 Sveinn Brynjólfsson - Um úrkomu og snjóflóð á Tröllaskaga.

13:45 Trausti Jónsson - Úrkoma í grennd - dægur, árstíða- og langtímasveiflur.
14:00 Sigurður Þorsteinsson - Tíðindi af hlélægð Grænlands.

Stutt hlé
14:15 Guðrún Nína Petersen - GFDex þá og nú.
14:30 Kristján Jónasson - Eyður í mælingarunum og mat á samdreifnifylki Gauss-dreifingar.

14:45 Hálfdán Ágútsson - Ógleði í flugi austan Öræfajökuls.

15:00 Haraldur Ólafsson - Tóbinröstin mæld.

Kaffihlé

Aðalfundur

i Starfsskýrsla

ii Fjármál

iii Kosningar

iv Önnur mál

Erindin er um 12 mínútur að lengd auk um 2 mínútna til spurninga og umræðu. Útdrættir valinna erinda eru aftan við skeytið.

Sjáumst á föstudaginn,

stjórnin

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur:

Seltuveður 18. september 2008 og tegundir seltuveðra suðvestanlands.

18. september gerði allhvassa SV-átt með nokkurri seltumóðu í lofti suðvestanlands. Hægt var að rekja þurrt loftið ofan af Grænlandi og í

lægri lögum var það komið yfir Grænland frá Labrador. Eins og svo oft áður urðu truflanir í raforkuflutnngskerfinu og m.a. varð skammhlaup í

Brennimel í Hvalfirði og 300 MW álag leysti út. Ekki er mikil þekking á uppruna seltu í þessum veðrum annað en það að vitað er að saltið kemur

vitanlega úr sjónum. Hluti þess berst í loftið í brimi við Reykjanes og með Suðurströndinni, en minna er vitað um þátt mikillar veðurhæðar á

rúmsjó þegar sjór tekur að rjúka í verulegum mæli og saltagnir verða eftir við uppgufun.

Kristján Jónasson, stærðfræðingur:

Eyður í mælingarunum og mat á samdreifnifylki Gauss-dreifingar.

Undanfarin þrjú ár hef ég verið að skrifa forrit í Matlab og C til að reikna sennileikafall fyrir svonefnd eiginaðhvarfslíkön af tímaröðum sem vantar inn í. Oft er táknunin VARMA(p,q) notuð til að lýsa þessum líkönum, þar sem p er fjöldi eiginaðhvarfsliða og q er fjöldi hreyfimeðaltalsliða. Sértilvikið p = q = 0 svarar til þess að fyrir liggi úrtak fengið með Gauss-dreifingu, og í ljós hefur komið að það er ekki erfitt að laga forritin að þessu tilviki. Þar með sé ég fram á að brátt rætist gamalt markmið frá árinu 1994, sem er að geta með sjálfvirkum hætti fyllt upp í meðaltalsrunur veðurmælinga (t.d. hita) frá veðurstöðvum þar sem mælt hefur verið á mismunandi tímabilum.

Haraldur Ólafsson, veðurfræðingur:
Tóbínhöfðaröstin.

Tóbínhöfðavindröstin var mæld í mars 2008.  Hitahvarf var í um 900 hPa hæð og í grennd við hitahvarfið var bálhvasst.  Þar fyrir ofan og neðan var mun hægari vindur. Hitahvarfið hallar til austurs og það gerir vindröstin líka.  Svo hvasst er að þegar vindurinn skellur á hinu 3700 m háa Gunnbjarnarfjalli kemst mest af loftinu yfir fjallið, en við það verður mikil lóðrétt blöndun.

Guðrún Nína Petersen, veðurfræðingur:
GFDex þá og nú: Litið um öxl og svo arkað fram.

Nú eru liðin 2 ár síðan hópur veðurfræðinga settist að í Keflavík í 3 vikur og stóð fyrir rannsóknaflugi á Íslands-Grænlandssvæðinu. Það er því ekki úr vegi

að líta aðeins um öxl og rifja upp hvað fór fram á þessum þremur vikum. Í framhaldi verður stiklað á stóru um þá vinnu sem fór fram í framhaldi af

vettvangskönnunninni og hvar við stöndum í dag.

Hálfdán Ágústsson, veðurfræðingur:
Ógleði í flugi austan Öræfajökuls.

Þann 18. nóvember síðastliðinn lenti vél flugfélagsins Ernis í mikilli ókyrrð austan Öræfajökuls á leið sinni til Hafnar í Hornafirði.  Enginn viðvörun um ókyrrð hafði verið gefin út fyrir svæðið og flugmennirnir höfðu aldrei lent í viðlíka ókyrrð á flugleiðinni.  Vindur var hvass og áttin vestlæg, en lofthjúpsreikningar í hárri upplausn sýna fjallabylgjur sem myndast í lofthjúpnum austan og sunnan Öræfajökuls og gætir þeirra langt út á haf.  Flugleið vélarinnar lá í gegnum bylgjurnar en afar hvasst er í niðurstreyminu í hverjum bylgjudal en mikil ókyrrð undir bylgjutoppunum.