<html xmlns:v="urn:schemas-microsoft-com:vml" xmlns:o="urn:schemas-microsoft-com:office:office" xmlns:w="urn:schemas-microsoft-com:office:word" xmlns="http://www.w3.org/TR/REC-html40">
<head>
<meta http-equiv=Content-Type content="text/html; charset=iso-8859-1">
<meta name=Generator content="Microsoft Word 11 (filtered medium)">
<style>
<!--
/* Style Definitions */
p.MsoNormal, li.MsoNormal, div.MsoNormal
        {margin:0cm;
        margin-bottom:.0001pt;
        font-size:12.0pt;
        font-family:"Times New Roman";}
a:link, span.MsoHyperlink
        {color:blue;
        text-decoration:underline;}
a:visited, span.MsoHyperlinkFollowed
        {color:purple;
        text-decoration:underline;}
span.EmailStyle17
        {mso-style-type:personal;
        font-family:Arial;
        color:windowtext;}
span.EmailStyle18
        {mso-style-type:personal-reply;
        font-family:Arial;
        color:navy;}
@page Section1
        {size:595.0pt 842.0pt;
        margin:72.0pt 90.0pt 72.0pt 90.0pt;}
div.Section1
        {page:Section1;}
-->
</style>
<!--[if gte mso 9]><xml>
<o:shapedefaults v:ext="edit" spidmax="1026" />
</xml><![endif]--><!--[if gte mso 9]><xml>
<o:shapelayout v:ext="edit">
<o:idmap v:ext="edit" data="1" />
</o:shapelayout></xml><![endif]-->
</head>
<body lang=EN-US link=blue vlink=purple>
<div class=Section1>
<p class=MsoNormal style='text-autospace:none'><b><font size=3 color=black
face="Times New Roman"><span lang=IS style='font-size:12.0pt;color:black;
font-weight:bold'>Ágæti viðtakandi<o:p></o:p></span></font></b></p>
<p class=MsoNormal style='text-autospace:none'><b><font size=3 color=black
face="Times New Roman"><span lang=IS style='font-size:12.0pt;color:black;
font-weight:bold'><o:p> </o:p></span></font></b></p>
<p class=MsoNormal style='text-autospace:none'><b><font size=3 color=black
face="Times New Roman"><span lang=IS style='font-size:12.0pt;color:black;
font-weight:bold'>Mánudaginn 26. janúar kl. 17:15 verður haldið fjórða fræðsluerindi
vetrarins og það fyrsta á nýju ári. <o:p></o:p></span></font></b></p>
<p class=MsoNormal style='text-autospace:none'><b><font size=3 color=black
face="Times New Roman"><span lang=IS style='font-size:12.0pt;color:black;
font-weight:bold'>Erindið verður haldið í fyrirlestrarsal Menntaskólans við
Sund að Gnoðarvogi 43.<o:p></o:p></span></font></b></p>
<p class=MsoNormal style='text-autospace:none'><b><font size=3 color=black
face="Times New Roman"><span lang=IS style='font-size:12.0pt;color:black;
font-weight:bold'><o:p> </o:p></span></font></b></p>
<p class=MsoNormal style='text-autospace:none'><b><font size=3 color=black
face="Times New Roman"><span lang=IS style='font-size:12.0pt;color:black;
font-weight:bold'>Lífríkiskreppur í Mývatni<o:p></o:p></span></font></b></p>
<p class=MsoNormal style='text-autospace:none'><font size=3 color=black
face="Times New Roman"><span lang=IS style='font-size:12.0pt;color:black'>Dr.
Árni Einarsson líffræðingur flytur erindi um rannsóknir á lífríki Mývatns.
Erindið er byggt á rannsóknum Árna og samstarfsmanna hans síðustu árin.
Niðurstöður þeirra voru nýlega birtar í hinu merka tímariti Nature. Árni lauk
BS-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands 1976 og doktorsprófi í vistfræði frá
háskólanum í Aberdeen í Skotlandi 1986. Hann hefur starfað við rannsóknir á
Mývatni frá árinu 1975 og er forstöðumaður Náttúrurannsóknastöðvarinnar við
Mývatn. <o:p></o:p></span></font></p>
<p class=MsoNormal style='text-autospace:none'><font size=3 color=black
face="Times New Roman"><span lang=IS style='font-size:12.0pt;color:black'><o:p> </o:p></span></font></p>
<p class=MsoNormal><font size=3 face="Times New Roman"><span lang=IS
style='font-size:12.0pt'>Mývatn er einhver lífauðugasti staður hér á landi.
Frjósemi vatnsins er óvenju mikil og má rekja hana til sjaldgæfra
jarðfræðilegra aðstæðna. Fylgst hefur verið með vatninu og lífríki þess í
aldarþriðjung og hefur komið í ljós að lífríkið er miklum sveiflum undirorpið
og eru líkur á að sveiflurnar hafi tekið á sig núverandi mynd um 1970. Sveiflur
í átustofnum hafa nú leitt til þess að bleikjustofn þessa fornfræga veiðivatns
stendur ekki lengur undir neinni veiði svo heitið geti. Fuglastofnar vatnsins
eru þó enn í góðu lagi. Sveiflur átustofnanna eru öfgakenndar og er
hundraðþúsundfaldur munur á fjölda mýflugna í hámarksárum miðað við lágmarkstímabil,
svo dæmi sé tekið. Nýjustu rannsóknir sýna að átustofnarnir hrynja í kjölfar
offjölgunar á mýflugulirfum sem ná að éta fæðuna frá afkomendum sínum. Eldri
kynslóðir af mýflugulirfum sóa þannig auðlindum afkvæma sinna. Sveiflugangurinn
er háður óvenjulegum en þó náttúrulegum lögmálum en sveiflurnar virðast hafa
dýpkað vegna þess að straumakerfi vatnsins hefur breyst af manna völdum.<o:p></o:p></span></font></p>
<p class=MsoNormal style='text-autospace:none'><i><font size=3 color=black
face="Times New Roman"><span lang=IS style='font-size:12.0pt;color:black;
font-style:italic'><o:p> </o:p></span></font></i></p>
<p class=MsoNormal style='text-autospace:none'><i><font size=3 color=black
face="Times New Roman"><span lang=IS style='font-size:12.0pt;color:black;
font-style:italic'>(ágrip í fullri lengd og myndir má nálgast á heimasíðu
félagsin; www.hin.is)<o:p></o:p></span></font></i></p>
<p class=MsoNormal><font size=3 face="Times New Roman"><span lang=IS
style='font-size:12.0pt'><o:p> </o:p></span></font></p>
<p class=MsoNormal><b><font size=3 face="Times New Roman"><span lang=IS
style='font-size:12.0pt;font-weight:bold'>Þessi tilkynning er send starfsmönnum
helstu stofnana og fyrirtækja sem fást við rannsóknir á náttúru Íslands. <o:p></o:p></span></font></b></p>
<p class=MsoNormal><b><font size=3 face="Times New Roman"><span lang=IS
style='font-size:12.0pt;font-weight:bold'>Vonum að sem flestir mæti.<o:p></o:p></span></font></b></p>
<p class=MsoNormal><b><font size=3 face="Times New Roman"><span lang=IS
style='font-size:12.0pt;font-weight:bold'><o:p> </o:p></span></font></b></p>
<p class=MsoNormal><b><font size=3 face="Times New Roman"><span lang=IS
style='font-size:12.0pt;font-weight:bold'>Fyrir hönd Hins íslenska
náttúrufræðifélags<o:p></o:p></span></font></b></p>
<p class=MsoNormal><b><font size=3 face="Times New Roman"><span lang=IS
style='font-size:12.0pt;font-weight:bold'>Friðgeir Grímsson, fræðslufulltrúi
HÍN<o:p></o:p></span></font></b></p>
<p class=MsoNormal><font size=2 face=Arial><span lang=IS style='font-size:10.0pt;
font-family:Arial'><o:p> </o:p></span></font></p>
</div>
</body>
</html>