[Folda] Haustþing Veðurfræðifélagsins

Veðurfræðifélagið . vedurfraedifelagid at gmail.com
Tue Oct 4 10:06:59 GMT 2011


Góðan dag

Veðurfræðifélagið minnir á haustþing sitt sem haldið verður
þriðjudaginn 18. október 2011. Fundur verður settur kl. 13 í Víðgelmi
í Orkugarði að Grensásvegi 9 og slitið kl. 16. Þingið og
Veðurfræðifélagið eru opin öllum sem áhuga hafa á veðri og veðurfari.

Enn er hægt að koma að erindum og hér með er því auglýst eftir frekari
óskum um erindi á haustþingið. Að þessu sinni er sérstaklega óskað
eftir erindum sem falla að efninu: „veður og orka“, en sem fyrr eru þó
öll erindi sem tengjast veðri og veðurfari einnig velkomin. Erindin
verða að jafnaði um 12 mínútur auk 2 mínútna til spurninga. Senda þarf
titil og stuttan útdrátt á „vedurfraedifelagid hjá gmail.com“. Við
tökum jafnframt gjarnan við einni mynd úr hverju erindi sem hentað
gæti í auglýsingu fyrir dagskrá þingsins.

Kveðja,
Guðrún Nína, Hálfdán og Sibylle


More information about the Folda mailing list