[Folda] Nýársgleði Foldu í dag kl. 16:00 / Folda 's New Year's celebration today at 16:00

Snæbjörn Guðmundsson sng2 at hi.is
Fri Jan 28 12:51:30 GMT 2011


Halló og gleðilegt nýtt ár!         --- English below

Folda mun halda nýársgleði föstudaginn 28. janúar klukkan 16.00 í sal á 3. hæð.
Þar munum við veita hin eftirsóttu Netverðlaun Foldu fyrir árið 2010.
Auk þess sem vinningshafi síðasta árs, Ívar Örn Benediktsson, mun
halda hressandi og skemmtilegt erindi, viðstöddum til skemmtunar. Við
hvetjum því fólk til að uppfæra heimasíður sínar.

Netverðlaun Foldu eru veitt árlega einum starfsmanni eða framhaldsnema
á Jarðvísindastofnun sem viðurkenning fyrir heimasíðu sem er í senn
upplýsandi um viðkomandi starfsmann/nemanda, áhugaverð, fræðandi og
vel við haldið. Tilgangur verðlaunanna er jafnframt að hvetja
starfsmenn og nemendur stofnunarinnar til að halda úti góðum
heimasíðum um sig og sínar rannsóknir.

Netverðlaunahafar síðustu ára:
2009: Ívar Örn Benediktsson, sérfræðingur í Jöklajarðfræði og
-landmótun, ísaldarjarðfræði
2008: Þröstur Þorsteinsson, sérfræðingur í Jarðeðlisfræði.
2007: Leó Kristjánsson, sérfræðingur í Jarðeðlisfræði.
2006: Ólafur Ingólfsson, prófessor í Jöklajarðfræði og ísaldarjarðfræði.

Boðið verður upp á léttar veitingar við athöfnina.

Kveðja, Stjórnin

----

Hello and happy New Year

Folda will host a New Year's celebration on Friday 28th at 16.00 in
the meeting room on the third floor.
We will hand out the desirable Folda Internet Award for 2010. Last
years winner, Ívar Örn Benediktsson, will give an enlightening talk
for those present.
We encourage people to update their homepage.

The Folda Internet Award is handed out once a year to a staff member
or student at the Department of Earth Science, who maintains an
interesting, informative and up-to-date homepage. The purpose of this
award is to encourage the staff and the students of the department to
maintain good homepages about themselves and their research.

Last years award winners:
2009: Ívar Örn Benediktsson, Post Doc - Glacial geology and geomorphology
2008: Þröstur Þorsteinsson, Research scientist in Geophysics
2007: Leó Kristjánsson, Research scientist in Geophysics
2006: Ólafur Ingólfsson, Professor in Glacial geology and geomorphology

Light refreshments will be served.

Regards, The Board


More information about the Folda mailing list