[Folda] Dagskrá haustþings Veðurfræðifélagsins.
Veðurfræðifélagið .
vedurfraedifelagid at gmail.com
Fri Oct 16 11:55:17 GMT 2009
============
Veðurfræðifélagið minnir á haustþing sitt sem verður haldið næstkomandi
miðvikudag, 21. október. Fundur verður settur kl. 13 í Víðgelmi í Orkugarði
að Grensásvegi 9 og honum slitið kl. 16. Þingið er opið öllum sem hafa
áhuga á veðri og veðurfari. Að þessu sinni er stór hluti þingsins helgaður
fjarkönnun og mælingum á veðri.
Hér fyrir neðan er dagskrá þingsins auk útdrátta úr erindum.
Stjórnin vill jafnframt minna fyrirlesara á að lengd erinda er 10-12 mínútur
auk 2-3 mínútna fyrir spurningar. Ágætt er að setja erindin inn á tölvuna í
upphafi fundar, sérstaklega ef prófa þarf hvort hljóð- eða myndskrár skili
sér rétt í gegnum tölvukerfið.
Bestu kveðjur,
stjórnin
============
Dagskrá haustþings:
-------------------
13:00 Inngangur - Stjórn Veðurfræðifélagsins
13:15 Fjarkönnun og rauntímaeftirlit með hafís - Ingibjörg Jónsdóttir
13:30 Greining á gosösku og sandstormum með gervitunglagögnum - Hróbjartur
Þorsteinsson
13:45 Fjarkönnun og veðurfarstengd náttúruvá: Gróðureldar - Þröstur
Þorsteinsson
14:00 Athuganir á upptökum moldviðris á Austurlandi - Victor Kr. Helgason
Kaffihlé
14:45 Meðalvindhraði á landinu. Eru sjálfvirkar og mannaðar stöðvar
sambærilegar? - Trausti Jónsson
15:00 Rok og rigning: áhrif vinds á úrkomumælingar - Þórður Arason
15:15 Leitni í hitastigi á Íslandi á árunum 1961 til 2006 - Birgir
Hrafnkelsson
15:30 MOSO: Veðurmælingar með fjarstýrðri flugvél sumarið 2009 - Haraldur
Ólafsson
15:45 SUMO-glíma við Esjuna: Túlkun vindmælinga frá MOSO - Hálfdán Ágústsson
============
Yfirlit yfir útdrætti erinda:
----------------------------
Fjarkönnun og rauntímaeftirlit með hafís
Ingibjörg Jónsdóttir og Auðunn Friðrik Kristinsson
Ýmsar myndgerðir henta til fjarkönnunar á hafís, einkum ratsjármyndir,
ljós-, hita- og miðinnrauðar gervitunglamyndir. Hafísþekjan breytist hratt
og er afar fjölbreytileg: þykkt íssins og aldur, þéttleiki, landslag,
snjóhula, bráðnun, hryggir, lænur, vakir og rek. Borgarísjaka er oft að
finna innan ísbreiðunnar auk þess sem þeir eru til nokkurra vandræða þegar
hafísinn er fjarri, ekki síst á haustin. Engin ein myndgerð nýtist
fullkomlega við hafíseftirlit en samanburður og samtvinnun ólíkra myndgerða
hefur gefist nokkuð vel til að fylgjast með hafísnum við Ísland. Samanburður
við upplýsingar og kort úr ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar hefur einnig
gefist vel í flestum tilfellum þó nýmyndun hafíss hafi stundum komið út sem
þéttari ís á myndunum. Stöðlum International Ice Charting Working Group er
fylgt við ískortlagninguna þegar það á við, en við þróun aðferða er
framsetning öllu frjálslegri. Landupplýsingakerfi eru notuð til myndvinnslu,
kortagerðar og vörslu gagnanna. Í erindinu verður greint frá helstu þáttum í
hafíssögu síðastliðins árs og lögð sérstök áhersla á þá möguleika sem ný
flugvél og búnaður Landhelgisgæslunnar býður upp á, ekki síst við eftirlit
með borgarís. Sagt verður frá vinnufundi IICWG síðastliðið sumar og loks
rætt um mikilvægi hafíseftirlits við breytt skilyrði í veðurfari og
skipaumferð.
Greining á gosösku og sandstormum með gervitunglagögnum
Hróbjartur Þorsteinsson og Þröstur Þorsteinsson
Gervitunglagögn á mismunandi bylgjulengdum er hægt að nota til að auðkenna
gjósku vegna eldgosa með mismuna-aðferðum (Wen and Rose, 1994). Greiningin
er áreiðanleg ef hitastig gjóskunnar er nægjanlega frábrugðið hitastigi
bakgrunns eða bakgrunnsgeislunar. Einnig gagnast gervitunglagögn á sýnilega
sviðinu við greiningu á sandstormum. Mögulega er hægt að greina sandstorma
hérlendis með mismuna-aðferðum. Aðstæður þurfa hinsvegar að vera "réttar" og
rannsaka þarf gögn frá atburðum sem sjást greinilega á sýnilega sviðinu til
að þróa aðferðir til að meta hvenær og hversu nákvæmar upplýsingar er hægt
að fá með þessum aðferðum.
Fjarkönnun og veðurfarstengd náttúruvá: Gróðureldar
Þröstur Þorsteinsson
Sinueldarnir miklu á Mýrum vorið 2006 sýndu svo ekki varð um villst að
hættan vegna gróðurelda er raunveruleg á Íslandi. Fjarkönnunargögn á
mismunandi bylgjulengdum frá MODIS nemunum, sem eru í Aqua og Terra
gervitunglum NASA, veittu mikilvægar upplýsingar um ákafa og útbreiðslu
eldanna. Unnið er að því að þróa sjálfvirkar rauntíma mismuna-aðferðir til
að reikna hitafrávik, sér í lagi útgeislunarorku (fire radiative power),
stærð svæðis sem logar á og hitastig.
Athuganir á upptökum moldviðris á Austurlandi.
Victor Kr. Helgason og Árni J. Óðinsson
Uppfok og moldviðri þekkjast víða á Íslandi þegar þurrir vindar blása. Í
aðdraganda og við byggingu Kárahnjúkavirkjunar var búist við að uppfok myndi
aukast á Austurlandi við tilkomu Hálslóns. Landsvirkjun brást við með
greiningu, rannsóknum, eftirliti og ýmsum mótvægisaðgerðum. Ýmsar
landupplýsingar innan lónstæðisins voru greindar til að einangra erfiðustu
svæðin, fallryksmælar hafa verið settir upp víða um austanvert landið,
fylgst er með gervitunglamyndum af landinu og vökvun og fokgirðingum er
beitt við heftingu uppfoksins. En við hvaða skilyrði verður uppfok á
Austurlandi, hverju skilaði greining landupplýsinganna, hvað safnast í
fallryksmælana, hvað sést utan úr geimnum og duga mótvægisaðgerðirnar?
Meðalvindhraði á landinu. Eru sjálfvirkar og mannaðar stöðvar sambærilegar?
Trausti Jónsson
Samfelldni langtímaraða er sífellt ógnað. Miklar breytingar á
athugunarháttum og stöðvakerfi eru áhyggjuvaldar. Mönnuðum athugunum hefur
fækkað mjög á undanförnum árum. Í fyrirlestrinum er fjallað um það hvort
breytingar hafi orðið á meðalvindhraða vegna þessarar þróunar. Einnig er
fjallað um breytingar á meðalvindhraða síðustu 85 árin. Minnst er á fleiri
líklega skekkjuvalda í meðaltalsreikningum.
Rok og rigning - áhrif vinds á úrkomumælingar
Þórður Arason
Í þessari rannsókn eru samtímamælingar í mælireit Veðurstofunnar við
Bústaðaveg frá sjö úrkomumælum sl. 13 ár bornar saman og lagt mat á áhrif
vinds á mælingarnar. Tveir mælanna eru neðanjarðar, með mælisop í jarðhæð
(J1, J2). Álitið er að vindtruflanir séu mun minni í þeim mælum og er
nokkuð áberandi að þeir safna meiri úrkomu en aðrir mælar þegar rignir í
hvassviðri. Sjálfvirkar stöðvar skrá á 10 mín fresti uppsafnaða úrkomu með
vigtunar- og vippumælum (S1, S2) og 10 mín meðalvindhraða í 10 m hæð. Til
eru gögn frá sjálfvirku stöðinni í Reitnum með úrkomumæli frá sumrinu 1996.
Fyrsta sumarið eru úrkomugögnin áberandi lélegri og var því einungis notuð
gögn frá og með 1997. Úrkomumagn er mælt tvisvar á dag í venjulegum
íslenskum mæli, kl. 18 og 9 fyrir skeytastöðina (R1). Sérmælingarnar með
jarðmælunum fara einungis fram á sumrin (maí-okt.) og á virkum dögum kl. 9,
en þá er einnig mælt í Tretjakov-mæli (Tr) og öðrum venjulegum íslenskum
mæli (R2). Valdir voru þeir dagar þar sem mælitímabil var 24 klst, þ.e.
mælidögum eftir helgar og frídaga var sleppt. Einungis nýtast dagar þegar
úrkoma mældist á einhverjum mælanna. Einnig voru sett takmörk við að
sjálfvirka stöðin væri með heilleg gögn og að úrkomutegund á skeytastöðinni
væri metin sem hrein rigning, en ekki slydda eða snjór. Á þessum 13 árum,
1997-2009 höfum við slíkar samtímamælingar fyrir 580 rigningardaga.
Sjálfvirku stöðvarnar sýna hvenær dagsins úrkoman féll og vindhraða þegar
úrkoman féll. Með því að gefa sér að jarðmælarnir mæli rétt og sjálfvirku
stöðvarnar sýni hvenær úrkoman féll, má finna vindháð deyfingarföll fyrir
alla úrkomumælana.
Leitni í hitastigi á Íslandi á árunum 1961 til 2006
Birgir Hrafnkelsson
Leitni í hitastig á árunum 1961 til 2006 í árlegum og mánaðarlegum gildum er
metin fyrir meðaltalsgildi, hágildi og lággildi frá veðurstöðvum á Íslandi.
Leitni í árlegu meðaltali er 0,19 gráður á Celcius á 10 árum. Fyrir árleg
hágildi og lággildi er leitnin 0,43 og 0,61 gráður á Celcius á 10 árum.
Leitnin er breytileg á milli mánaða og í flestum tilfellum jákvæð. Í nokkrum
mánuðum er leitnin neikvæð en það gerist í mánuðunum sem teljast til byrjun
vetrar og loka vetrar.
MOSO - Veðurmælingar með fjarstýrðri flugvél sumarið 2009
Haraldur Ólafsson, Dubravka Rasol, Hálfdán Ágústsson, Joachim Reuder,
Marius O. Johannessen, Ólafur Rögnvaldsson og Sigurður Jónsson
Í Mosó-verkefninu er leitast við að lýsa staðbundum vindakerfum í tíma og
rúmi. Í júli 2009 var flogið með ómönnuðu loftfari víða um neðri hluta
veðrahvolfsins í því skyni að afla gagna til að lýsa vindum á borð við
hafgolu og vindrastir í grennd við Esju. Til viðbótar við flugin var veður
mælt á jörðu niðri með sjálfvirkum færanlegum veðurstöðvum. Leitast verður
við að veita yfirlit yfir verkefnið og sýnd verða nokkur dæmi um vel heppnuð
flug sem sýna þversnið sólfarsvinda.
SUMO-glíma við Esjuna: Túlkun vindmælinga
Hálfdán Ágústsson
Þann 15. júli 2009 var veður mælt sunnan Esjunnar með fjarstýrðri flugvél
(SUMO). Mælingarnar voru hluti af alþjólega MOSO-mæliverkefninu. Vindur
var víðast hvar hægur af norðaustri en nokkuð byljóttur og norðanstæður
sunnan Esjunnar. Mælingar með SUMO-vélinni gáfu til kynna mjög staðbundið
hámark í vindhraða í um 100 m hæð sunnan Esjunnar en vindur var mun hægari
þar fyrir ofan. Leitast verður við að túlka mælingarnar og lýsa tilraunum
við að herma ástand lofthjúpsins með líkanreikningum í mjög hárri upplausn.
============
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20091016/72f5aacb/attachment.html
More information about the Folda
mailing list