[Folda] Pokadýr í Ástralíu - Erindi á vegum HÍN
Friðgeir Grímsson
fossil at hi.is
Thu Feb 19 11:00:08 GMT 2009
Ágæti viðtakandi
Mánudaginn 23. febrúar kl. 17:15 verður haldið fimmta fræðsluerindi
vetrarins.
Erindið verður haldið í fyrirlestrarsal Menntaskólans við Sund að Gnoðarvogi
43.
Pokadýr í Ástralíu
Rannveig Magnúsdóttir, doktorsnemi í líffræði við Háskóla Íslands, flytur
erindi um pokadýr Ástralíu. Í þessum fyrirlestri mun Rannveig fara aftur í
tímann og skoða uppruna og örlög pokadýra í heiminum og einnig fjalla um í
máli, myndum og myndböndum, nokkur af þeim pokadýrum sem hún hitti á ferðum
sínum um Ástralíu. Þar á meðal er fenjapokamúsin (Antechinus minimus) sem
var viðfangsefni meistaraprófsverkefnis hennar. Rannveig er stúdent frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð og lauk MS-prófi í líffræði frá Háskóla Íslands
árið 2005 í samstarfi við Deakin háskóla í Geelong, Ástralíu. Hún
útskrifaðist úr Kvikmyndaskóla Íslands árið 2007 og stundar nú doktorsnám í
líffræði við Háskóla Íslands í samstarfi við háskólann í Oxford.
Pokadýr í Ástralíu eru miklu stærri og fjölbreyttari hópur dýra en margir
gera sér grein fyrir. Kengúrur og kóalabirnir koma flestum kunnuglega fyrir
sjónir en í þessari fjarlægu heimsálfu leynast margar aðrar furðuverur sem
fáir vita um, m.a. pokamerðir, maurapokar, pokagreifingjar, pokaíkornar og
pokamoldvörpur. Eins og þessi nöfn benda til líkjast sum þessara dýra öðrum
alls óskyldum fylgjuspendýrum frá öðrum heimsálfum og hér hefur því orðið
samhliða þróun. Pokadýr eru af mörgum stærðum og gerðum; minnsta pokamúsin
(Planigale ingrami) er einungis 4 grömm en rauðkengúran (Macropus rufus)
getur orðið 70-80 kíló. Mörg risapokadýr voru til áður en maðurinn fluttist
til Ástralíu en þau dóu öll út fyrir um 47 þúsund árum og talið er að
maðurinn hafi haft þar mikil áhrif. Diprotodon var stærsta pokadýr sem vitað
er að hafi lifað en það var tveggja metra hátt og vó yfir tvö tonn.
Skyldmenni þess í dag eru kóalabirnir og vambar.
(ágrip í fullri lengd og myndir má nálgast á heimasíðu félagsin; www.hin.is)
Þessi tilkynning er send starfsmönnum helstu stofnana og fyrirtækja sem fást
við rannsóknir á náttúru Íslands.
Vonum að sem flestir mæti.
Fyrir hönd Hins íslenska náttúrufræðifélags
Friðgeir Grímsson, fræðslufulltrúi HÍN
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20090219/35275b00/attachment.html
More information about the Folda
mailing list