[Folda] Loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á lífríki Íslands - Erindi á vegum HÍN

Friðgeir Grímsson fossil at hi.is
Mon Sep 22 16:07:44 GMT 2008


Ágæti náttúrufræðingur

 

Mánudaginn 29. september verður haldið fyrsta fræðsluerindi vetrarins á
vegum Hins íslenska náttúrufræðifélags . 

Erindið verður haldið kl. 17:15 í stofu 132, í Öskju, Háskóla Íslands.

 

 

Loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á lífríki Íslands

Dr. Snorri Baldursson og Dr. Bjarni Diðrik Sigurðsson flytja erindi um
rannsóknir á loftslagsbreytingum og áhrif þeirra á lífríki lands og sjávar.
Erindið er byggt á rannsóknum síðustu ára og nýútkominni skýrslu
umhverfisráðuneytisins um Hnattrænar loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á
Íslandi.

 

Samkvæmt nýlegum rannsóknum hefur loftslag farið hlýnandi hér á landi sem
annars staðar á undanförnum árum og hafa síðustu fimm árin verið með þeim
hlýjustu sem mæld hafa verið. Umtalsverðar breytingar hafa orðið á lífríki
landsins á sama tíma, en þar sem rannsóknir eru takmarkaðar er oft erfitt að
greina á milli breytinga sem stafa af hlýnun loftslags og þeim sem stafa af
breytingum á atvinnuháttum og landnotkun, einkum fiskveiðum og búfjárbeit.
Í erindinu verður fjallað um þær breytingar sem þegar eru merkjanlegar á
gróðurfari og dýralífi til lands og sjávar og reynt að spá fyrir um frekari
breytingar sem verða á öldinni gangi spár vísindamanna um
loftslagsbreytingar af mannavöldum eftir. 

 

 

Þessi tilkynning er send starfsmönnum helstu stofnana og fyrirtækja sem fást
við rannsóknir á náttúru Íslands. 

Vonum að sem flestir mæti.

 

Fyrir hönd Hins íslenska náttúrufræðifélags

Friðgeir Grímsson, fræðslufulltrúi HÍN

 

www.hin.is

 

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20080922/a24830bd/attachment.html


More information about the Folda mailing list