[Folda] árshátíð JÖRFÍ 2008

Hrafnhildur Hannesdóttir hrafnha at hi.is
Wed Oct 29 12:01:58 GMT 2008


Árshátíð JÖRFÍ laugardaginn 8. nóvember 2008

Lagt verður upp frá nágrenni Select við Vesturlandsveg, hvar Ölgerð 
Egils Skallagrímssonar býður til fordrykkjar í húsakynnum sínum 
stundvíslega kl. 17.30. Að þeirri stund lokinni verður haldið með 
langferðabíl á vit ævintýranna þar sem okkur bíður veislumatur og 
dansiball með lifandi tónlist.

Fólk ber ábyrgð á eigin veigum til hátíðarhaldanna sem koma má fyrir í 
til þess ætluðum álkistum sem verða til reiðu í fjallabílum fyrir utan 
Ölgerðina.
Fyrir þá sem velja léttvín, gæti hvítvín verið viðeigandi. 

Miðinn kostar 4.500 íslenskar nýkrónur og fæst í Öskju (hjá Hrafnhildi 
849-7824 eða Finni 525-4936).

skemmtinefnd JÖRFÍ



More information about the Folda mailing list