RE: [Folda] sameining nemendafélaga

Rannveig Guicharnaud rannveig at lbhi.is
Thu Apr 3 19:39:38 GMT 2008


Mikið rétt.  Þekki það af eigin raun, er svo hætt að skipta mér af.  
 
Áfram jarðvísindin barasta
 
R
 

________________________________

From: Hálfdán Ágústsson [mailto:halfdana at hi.is]
Sent: Thu 3.4.2008 19:31
To: Rannveig Guicharnaud
Cc: "Sigurður H. Markússon"; Ívar Örn Benediktsson; Björn Oddsson; Helgi Arnar Alfreðsson; folda at hi.is
Subject: Re: [Folda] sameining nemendafélaga



Psssttt... Þegar ég var í grunnnámi þá hét félag jarðeðlisfræðinema
Stigull ;)  Hefur það breyst þ.a. allir nemendur í jarðvísindum eru
komnir í Fjallið, það ágæta félag?

En að gagnrýna á að vera að rýna til gagns.  Það gleymist oft að hrósa
líka fyrir það sem er gert vel og stjórnin á skilið klapp á bakið.  Það
að taka að sér stjórnarstörf í áhugafélögum, plana skemmtanir og standa
í öðru stappi er oft vanmetið.

há



Rannveig Guicharnaud wrote:
> Ooooo.  Nú langar mig að halda áfram að skipta mér af, jæja þá fyrst þið endilega viljið.
> 
> Ég sé ekki að það sé hlukverk Foldu að virkja áhuga nemenda það verða þeir að finna hjá sjálfum sér.  Ef áhuginn er ekki til staðar í grun´nnámi þá er bara að skella sér í annað fag.
> 
> Fyrsta árs nemendur geta svo kynnst 2 annars og þriðja árs nemendum með því að mæta á viðburði Fjallsins. 
> 
> Ég hef ekki orðið vör við að Folda sé ekki "fókuseruð" á jarðvísindi ???????? skil alls ekki þessi rök og nú fylgist ég nú bara með á hliðarlínunni.
> 
> R
> 
>     
> 
>
> ________________________________
>
> From: folda-bounces at listar.hi.is on behalf of Sigurður H. Markússon
> Sent: Thu 3.4.2008 17:56
> To: 'Ívar Örn Benediktsson'; 'Björn Oddsson'; 'Helgi Arnar Alfreðsson'
> Cc: folda at hi.is
> Subject: RE: [Folda] sameining nemendafélaga
>
>
>
> Sæl öll,
> Ég held að það sé til mikils að vinna með því að stofna eitt öflugt
> nemendafélag fyrir alla nemendur hinnar nýju skorar og þá sérstaklega til að
> reyna
> auka tengsl milli allra nemenda sem stunda nám í jarðvísindum og skapa góðan
> hópanda. Einnig tel ég þetta mjög mikilvægt til að virkja áhuga nemenda í
> grunnnámi sérstaklega
> þar sem mjög neikvæðar breytingar hafa átt sér stað á eftir að flutt var í
> Öskju og fólk sem er t,d á fyrsta ári þekkir ekki eldri nemendur og hvað þá
> nema í framhaldsnámi. Þarna væri líka hægt að hafa starfsemi félagsins mun
> fókusaðri á jarðvísindi og atburði á vegum félagsins mun tíðari. Það verður
> nú bara að viðurkennast að oft þegar eitthvað er að gerast á vegum
> framhaldsnema hérna þá er mætingin vægast sagt léleg. Aftur á móti er ég
> alveg sammála því að nauðsynlegt sé að starfrækt sé hagsmunafélag
> framhaldsnema og er ekkert sem segir að slíkt félag geti ekki starfað undir
> eða samhliða nýju nemendafélagi.
>
> Nemendur í grunnnámi virðast vera mjög fylgjandi þessu og telja að þetta
> myndi verða til góðs fyrir þau. En þetta er nú bara allt í spjall-stiginu
> ennþá og gott að sem flestir viðri sínar skoðanir.
>
> Kv, Sigurður Markússon
>
>
>
>
>
> -----Original Message-----
> From: folda-bounces at listar.hi.is [mailto:folda-bounces at listar.hi.is] On
> Behalf Of Ívar Örn Benediktsson
> Sent: 3. apríl 2008 17:07
> To: 'Björn Oddsson'; 'Helgi Arnar Alfreðsson'
> Cc: folda at hi.is
> Subject: RE: [Folda] sameining nemendafélaga
>
> Halló,
>
> Ég vil byrja á því að lýsa yfir ánægju með þetta fyrsta framtak nýrrar
> stjórnar.
>
> Ég vil hins vegar taka undir með Birni Odds! Ég er þeirrar skoðunar að ekki
> eigi að sameina félögin, enda eru hagsmunir þeirra mjög mismunandi. Folda er
> og á áfram að vera mun faglegra félag heldur en Fjallið, rétt eins og Björn
> bendir á. Hagsmunir okkar í Foldu varða miklu meira faglega þætti heldur en
> hagsmundir nemenda í grunnnámi (með fullri virðingu fyrir þeim). Má þar
> nefna kjaramál, aðstöðumál, öryggismál, aðgang að rannsóknartækjum og
> -búnaði, ýmis konar mál er varða framvindu í framhaldsnámi, fjármögnun
> framhaldsnáms, fjármögnun rannsókna, kennslumál og margt, margt fleira.
> Þetta eru allt önnur mál en grunnnemendur glíma við og allt aðrir hagsmunir
> sem þarf að gæta.
>
> Frekara samstarf félaganna er aftur á móti hið besta mál, og sjálfsagt mál
> að sameina af og til viðburði félaganna til að efla andann og tengslin.
>
> Kveðja, Ívar Örn
>
> -----Original Message-----
> From: folda-bounces at listar.hi.is [mailto:folda-bounces at listar.hi.is] On
> Behalf Of Björn Oddsson
> Sent: Thursday, April 03, 2008 4:49 PM
> To: Helgi Arnar Alfreðsson
> Cc: folda at hi.is
> Subject: [Folda] sameining nemendafélaga
>
> Sæl
>
> Þar sem ég get ekki þátt í bjórdrykkjunni góðu, þá vil ég leggjast
> algjörlega gegn því að nemendafélög framhaldsnema og grunnnema verði sett
> undir einn hatt.
>
> Þau starfa algjörlega að mismunandi markmiðum og í raun afskaplega fá
> markmið sem félögin geta stefnt að.  Folda er og á að vera mun faglegra
> nemendafélag heldur en fjallið og aðalmarkmið félagsins var að sameina
> framhaldsnema í jarðvísindum sem sitja víða um stofnanir á Íslandi og
> erlendis.  Það hefur ekki alveg virkað sem skyldi og legg ég til að ný
> stjórn Foldu leggi sig frekar fram í þeim málum, heldur en að gera félagið
> enn tengdara þeim sem stunda nám í Öskju og hafa áhuga á að drekka bjór.
>
> Hins vegar er sjálfsagt að félögin starfi saman og bakki hvort annað upp þar
> sem á við.
>
> kv.
>
> Björn Oddsson
>
>
>> Komi þið sæl, [English below]
>>
>> Ný stjórn Foldu hefur tekið við störfum og mun fyrsta embættisverk
>> hennar vera að halda partí n.k. föstudag.  Folda mun bjóða nemendum í
>> grunnnámi að vera með og halda fyrir þá smá kynningu á störfum
>> nokkurra framhaldsnema hér við stofnunina ásamt því að kynna stofnuna
> sjálfa.
>> Tilgangurinn að efla tengsl og samvinnu jarðvísindanema á öllum stigum
>> námsins. Einnig að hvetja nemendur í grunnnámi til að taka þátt í
>> félagsstarfi og atburðum á vegum Foldu sem og ráðstefnum og öðru sem
>> tengist jarðvísindum. Boðið verður upp á fljótandi veitingar ásamt
>> öðrum veitingum sem eru í boði jarðfræðiskorar. Mikilvægt  er að sem
>> flestir mæti til að tilgangi samkomunar sé náð.
>>
>> Ef svo ólíklega vill til að fríu veitingarnar klárist mun bjór verða
>> seldur á mjög hagstæðu verði.
>>
>> Mæting er í Öskju kl: 20.00 á föstudaginn.
>>
>> Kveðja,
>> Stjórn Foldu.
>>
>> P.s Einnig verða óformlegar umræður yfir bjórdrykkju hvort eigi að
>> endurskoða fyrirkomulag núverandi nemendafélaga og stofna nýtt félag
>> stúdenta undir hinni nýju Jarðvísindaskor. Þar sem jarðvísindanemendur
>> á öllum stigum námsins ásamt stúdentum í námsbrautinni "Jarðvísindi
>> fyrir erlenda stúdenta" munu standa að.
>>
>> --------
>>
>> Hello everyone,
>>
>> The new administration of Folda has taken office and the first
>> assignment is to throw a party next Friday. Folda will invite the
>> undergraduate students in geology to join us. The idea is to introduce
>> them to what projects a few of us are working on and give them a short
>> presentation of the Institution of Earth Sciences. The goal is to
>> extend fellowship and collaboration between us in earth sciences and
>> also to encourage them to participate in Folda's events. Folda will
>> offer free beer and The Department of Earth Sciences will offer some light
> snacks.
>> If the free beer will dry up, you can buy some more offered in a good
>> price.
>>
>> The meeting will start at 20:00 in Askja next Friday.
>>
>> Regards,
>> The Board of Folda.
>>
>> P.s. Some informal discussions will be held during the beer drinking
>> about the merge of Folda and undergraduate geosciences students to
>> form a new student association under the new Department of Earth
>> Science, with participation of the "Earth science for foreign students"
> program.
>>
>> _______________________________________________
>> Folda mailing list
>> Folda at listar.hi.is
>> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>>
>
>
> --
> Með kveðju,
>
> Björn Oddsson
> Physikalisch Vulkanologisches Labor
> Institut für Geologie
> Pleicherwall 1
> D-97070 Würzburg
> Germany
>
> Sími:00 354 869 3432
>
> _______________________________________________
> Folda mailing list
> Folda at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>
>
> _______________________________________________
> Folda mailing list
> Folda at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>
>
> _______________________________________________
> Folda mailing list
> Folda at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>
>
>
>
>
> ------------------------------------------------------------------------
>
> _______________________________________________
> Folda mailing list
> Folda at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/folda/attachments/20080403/25f7dcbc/attachment.html


More information about the Folda mailing list