[Folda] MSc fyrirlestur kl 15 / MSc presentation at 15
Ívar Örn Benediktsson
iob2 at hi.is
Fri Oct 6 12:07:07 GMT 2006
Arnar Már Vilhjálmsson heldur fyrirlestur um MS-verkefni sitt í
jarðeðlisfræði á föstudag 6. október kl. 15:00 í stofu 131 í Öskju. Í
verkefninu beitti Arnar Már þyngdarmælingum til að kanna uppbyggingu
efsta hluta jarðlagastaflans á svæðinu milli Brennisteinsfjalla og
Núpshlíðarháls á Reykjanesskaga. Heiti ritgerðarinnar er: "A gravity
study of hyaloclastite formations and lava fields around Kleifarvatn,
Reykjanes Peninsula, Iceland"
Arnar lauk BS prófi í rafmagnsverkfræði 2002 en hóf MS-nám í
jarðeðlisfræði við eðlisfræðiskor 2004. Leiðbeinandi Arnars Más var
Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor en auk hans var Kristján Sæmundsson
jarðfræðingur í MS-nefndinni. Prófdómari er Knútur Árnason,
jarðeðlisfræðingur á Íslenskum Orkurannsóknum.
More information about the Folda
mailing list