[English] [Fwd: Fyrirlestur um Poe]
Birna Arnbjörnsdóttir
birnaarn at hi.is
Wed Jan 23 15:00:38 GMT 2008
--------------------------- Upprunalegt Skeyti ---------------------------
Titill: Fyrirlestur um Poe
Frá: Róbert H Haraldsson <robhar at hi.is>
Dagsetning: mið, janúar 23, 2008 2:50 pm
Til: jaydarcy at hi.is
birnaarn at hi.is
--------------------------------------------------------------------------
Heil og sæl.
Er hægt að auglýsa þennan fyrirlestur hjá enskunemum? Hann er um þrjár
smásögur Poes (The Man That Was Used Up, Ligeia, og The Purloined Letter)?
Candace Vogler er mjög fær fræðimaður sem starfar við University of
Chicago (sjá hér að neðan, og á heimasíðu Háskólans).
Bestu kveðjur, Róbert H.
Fyrirlestur í boði Heimspekistofnunar Háskóla Íslands - Candace Vogler:
Reading Ethics in Poe (25.01.2008)
Föstudaginn 25. janúar flytur Candace Vogler, dósent í heimspeki við
Chicago-háskóla, fyrirlestur í boði Heimspekistofnunar: Reading Ethics in
Poe. Fyrirlesturinn verður í stofu 111 í Aðalbyggingu Háskólans og hefst
kl. 12.
Í fyrirlestrinum verður rætt um heimspeki í bókmenntum með áherslu á
smásögur Edgars A. Poe. Sjónum verður einkum beint að þremur smásögum
Poes: The Man That Was Used Up, Ligeia, og The Purloined Letter.
Vogler er höfundur bókanna John Stuart Mills Deliberative Landscape: An
Essay in Moral Psychology (Routledge, 2001); Reasonably Vicious (Harvard
University Press, 2002), og meðritstjóri bókanna Critical Limits of
Embodiment (Duke University Press, 2002, ásamt Carol Breckenridge) og
Public Culture (Duke University Press, 2003, ásamt Patchen Markell).
Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og er öllum opinn.
More information about the English
mailing list