[English] Felice Picano heiðrar Samtökin ´78 á bókmenntakvöldi

Matthew Whelpton whelpton at hi.is
Wed Sep 8 11:35:13 BST 2004


Tilkynning - mánudagur 13.sept

Heimsfrægur gestur í Regnbogasal:
Felice Picano heiðrar Samtökin ´78 á bókmenntakvöldi
Bandaríski rithöfundurinn Felice Picano er gestur Samtakanna ´78 í
Regnbogasal félagsins, mánudaginn 13. september kl. 21:00. Þar mun hann ræða
um líf sitt og skáldskap og lesa úr verkum sínum. Að upplestri loknum verða
umræður og fyrirspurnir. 
Nafn Felice Picano þekkja allir sem hafa fylgst með skáldskap samkynhneigðra
í Bandaríkjunum síðustu áratugi. Hann er löngu heimsfrægur fyrir verk sín og
eftir hann liggja á þriðja tug bóka. Frægustu verk hans eru án efa
skáldsögurnar Like People in History og Looking Glass Lives, svo og
endurminningabækurnar Ambidextrous: The Secret Lives of Children, Men Who
Loved Me og A House on the Ocean, a House on the Sea. Felice Picano er
einnig annar höfundur metsölubókarinnar The New Joy of Gay Sex. Hann hefur
unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín, m.a. The PEN Syndicated Fiction
Award fyrir smásagnagerð, en fyrir metsöluskáldsöguna Like People in History
hlaut hann hin eftirsóttu The Ferro-Grumley Award. Hann hefur einnig verið
tilnefndur til hinna virtu Ernest Hemingway verðlauna og þrívegis tilnefndur
til The Lambda Literary Award sem veitt eru fyrir skáldskap samkynhneigðra
vestan hafs.

Picano er mikilsvirtur baráttumaður fyrir málefnum samkynhneigðra. Árið 1977
stofnaði hann bókaútgáfuna Sea Horse Press, en það var eitt fyrsta forlag í
Bandaríkjunum sem eingöngu sinnti samkynhneigðu efni. Síðar sameinaðist
forlagið tveimur öðrum slíkum undir nafninu Gay Presses of New York. Ásamt
öðrum rithöfundum, þar á meðal Edmund White og Andrew Holleran, stofnaði
Felice Picano the Violet Quill Club með það að markmiði að koma
samkynhneigðum rithöfundum á framfæri.

Heimsókn Felice Picano til Íslands er merkilegur viðburður sem margir hafa
beðið eftir. Dagskráin í Regnbogasalnum stendur í klukkutíma og er öllum
opin. Við hvetjum allt áhugafólk um bókmenntir og baráttu samkynhneigðra
fyrir sýnileika og stolti að láta þetta einstæða tækifæri ekki fram hjá sér
fara. 


_________________________________________

Dr. Matthew Whelpton
Senior Lecturer in English Linguistics
Chair, Department of English
Faculty of Humanities
University of Iceland
IS-101 Reykjavik
Iceland

Tel: +354 525 4451
Fax (faculty): +354 525 4410
URL: http://www.hi.is/~whelpton 





More information about the English mailing list